Veit það eru ekki komin 10 comment á síðustu færslu og finnst
ólíklegt að það komi auka comment þar sem það eru komnar 2 færslur
yfir hana

En Jáh..þetta er nú búin að vera "skemmtileg helgi".
Eins og ég talaði um í síðustu færslu þá ætlaði ég í bekkjarpartý
og októberfest...en um klukkan 1 (13) þegar ég var að fara í tíma
þá fékk ég þvílíkt illt í magann..ég hugsa ég hafi borðað einhvað
sem var ónýtt allavegana var ég að drepast í tímanum og gat ekkert
einbeitt mér

En ég ætlaði að reyna að hrista þetta af mér og
fara í bekkjarpartýið þar sem ég fór ekki á árshátíðina..en þegar
tíminn var búinn gat ég ekki hugsað mér að vera annars staðar en
heima hjá mér..fór heim og sá líka ekki eftir því..var að depast í
maganum..Kári bakaði pizzu og ég fékk mér og varð ógeðslega flökurt
lagðist uppí sófa og sofnaði...klukkan var 8 á föstudagskvöldi og
ég rumskaði ekki fyrr en um morguninn einmitt klukkan 8

Kári er
farinn að kalla mig þyrnirós, hann segir ég sofi svo mikið

Vill ekki taka undir það..segi bara að ég geri svo mikið yfir
daginn að ég sé ekki með okru í meir hehe
Já svo er helgin búin að einkennast af lærdómi, þetta er
erfitt...svakalega erfitt.. líkurnar á því að ég nái þessum áfanga
í fyrstu tilraun eru sláandi litlar! En þá er það bara sumarskóli
eða fyrsta árið aftur!
Rakst á grein á vísindavefnum sem heitir DAUÐASYNDIRNAR SJÖ sem
eru: hroki, öfund, reiði, þunglyndi/leti, ágirnd, ofát og
munúðlífi..Ég er nú ekki trúaðasta manneskjan sem þið þekkið en ég
er að spá í að reyna að taka þetta mér til fyrirmyndar..eða reyna
að fylgja þessi..hætta öllum hroka sem er náttúrulega bara
leiðinlegt og öfund sem getur verið alveg óheyrilega pirrandi,
reiði - kannski erfitt að hætta því ef ástæða sé til en reyna

þunglyndi finnst það reyndar ekki eiga heima þarna því þú stjórnar
því ekki hvort þú sért þunglyndir en leti má alveg vera þarna og ég
þyrfti aðeins að rífa mig uppúr letinni þegar kemur að lærdómi og
hreyfingu hehe

ágirnd er nottla leiðindardrasl og ofát hehe þarf
nú aðeins að passa mig á þessu
Veit ekki afhverju ég er að tala um þetta en jæja..tala þó um
einhvað
Næsta skólavika verður erfið

Það er úr að ofan tími á
þriðjudaginn

Ég fýla ekki úr tíma

Þurfum að vera að þukla á
hvor öðru og finna bein og vöðva og liðbönd og annað slíkt

Skal
segja ykkur hvernig mér gengur þegar þetta er búið
Ekki meira að sinni..adios
~Þóra~